Það var mikið að gera hjá okkur í dag. Dagurinn byrjaði klukkan 9.00. Við kenndum þremur 7.bekkjum í röð, horfum síðan á einn sundtíma hjá 1.bekk og svo kenndum við tveimur 6. bekkjum. Allir bekkirnir fóru í stöðvaþjálfun en stöðvunum var aðeins breytt þegar leið á til að sjá hvort þær gengu betur.
Tíminn byrjaði á línuklukki, það gekk bara vel og krökkunum fannst það skemmtilegt
Síðan tók við stöðvaþjálfun með eigin líkamsþyngd. Tveir voru saman á hverri stöð og var unnið í 45 sek, síðan var skipt um stöð en þær voru 10. Fyrst vorum við að spá í að fara tvo hringi í stöðvaþjálfuninni en það hefði verið of mikið svo við ákváðum að hafa skotbolta í endann og svo teygðum við á saman. Við spurðum krakkana hvaða æfing væri góð til að teygja t.d. á lærvöðvunum og þá kom einhver með æfingu sem við síðan gerðum saman.
Sara benti okkur á að nokkrar stöðvarnar væru ekki alveg nógu góðar fyrir þennan aldurshóp svo við ákváðum að breyta þeim og þá gekk miklu betur. Sérstaklega með 6.bekk enda eru þau miklir orkuboltar
Sem dæmi má nefna að:
Stöð 1 þar voru háar hnélyftur á dýnu, breyttum við í leik þar sem reyna átti að snerta hné/öxl þess sem er með manni á stöð. Krökkunum fannst þetta miklu skemmtilegra og hreyfðu sig þar af leiðandi miklu meira.
Stöð 3 þar voru magaæfingar, þar hefði mátt setja bolta með sem þau ættu að kasta á milli sín.
Stöð 7 þar var kyrrstöðuæfing fyrir kvið, annar hefði mátt rúlla undir hinn bolta meðan sá hélt sér uppi. Til að þau myndu hugsa um eitthvað annað en bara sjálfa æfinguna.
Stöð 10 þar átti að sitja í 90%, hefði einnig verið hægt að hafa bolta og að gefa ætti hann á milli.
Við notuðum tónlist í tímanum sem virkaði vel. Til að sýna hvenær átti að skipta um stöð lækkuðum við í tónlistinni. Sara sagði að þegar það er bara einn kennari er betra að flauta og þá vita þau að þau eiga að skipta um stöð. Þetta gerir það líka af verkum að kennarinn þarf ekki að standa hjá græjunum allan tíman heldur getur betur leiðbeint um allan salinn.
Bekkirnir voru mjög misjafnir, sumir gerðu æfingarnar mjög vel en aðrir reyndu að komast upp með að gera sem minnst. Yfir heildina vorum við samt mjög ánægðar með tímana. Við prófuðum líka í dag að kenna bara ein og ein og það gekk mjög vel.
Við kíktum síðan aðeins á 1.bekk í sundi. Þau eru alltaf jafn mikil krútt. Voru að læra hvernig á að blása kúlur og reyna að liggja á bakinu. Það reyndist misvel, sumum fannst þetta lítið mál meðan aðrir gátu það ekki. Síðan voru tekin nokkur hopp, t.d. höfrunahopp og svo leiktími.
Okkur finnst mun erfiðara að kenna sund en íþróttir, það er einhvern vegin mun erfiðara að ná til krakkana þegar þau eru ofan í lauginni. Einnig er maður óöruggari með að kenna sund kannski því við kunnum það ekki jafn vel og hinar íþróttirnar.
Dagurinn á morgun er líka langur, stanslaust stuð